Tuðið mitt!!
Heimsóknir
Í dag:  7  Alls: 28888
Klukkan
Dagatal
janúar - 2012
S M Þ M F F L
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
293031
FyrriNæsti
20.10.2008 11:47:34 / katlah

þá er maður orðin árinu eldri!!!

Já já nú fer maður að sigla í þrítugsaldurinn, þó það sjáist nú ekki.8)
Átti allveg snilldar helgi. Var að vísu á rannsókn að rækta eigið piss, strok úr hálsi og fleira skemmtilegt og var það rosalega gaman.
Hélt svo smá partý fyrir nokkrar skvísur og var rosalega gaman. fékk fallegar gjafir en stærsta gjöfin var ábyggilega sú að Sólveig og Haraldur dingluðu hérna óvænt, voru hér um helgina og fór ég næstum að skæla þegar ég opnaði hehe. Snilld.
svo var auddað leiðin haldin á djammið og tjúttuðum við sem enginn væri morgundagurinn á Kaffi ak..algjör snilld.. skellti myndum á facebook!!!!
Mútter mín bauð svo í bröns í gær og hafði auddað gert alskonar kræsingar og tróð ég mig vel út af því í þynnkunni.. sem var allveg rosalega mikil.. hehe hef varla kynnst öðru eins.
En rólegur dagur í dag í snjónum, frí í skólanum og ætla ég sko ekki að gera neitt þangað til ég sæki elskuna mína í skólann.
Henni tókst að brjóta á sér öklann um daginn og fór í gifs og með hækjur, var hún algjör snillingur á hækjunum, fór allar sínar ferðir. en sem betur fer er hún laus úr gifsinu en á að taka því rólega í viku í viðbót, þannig að hún er í fríi í fimleikunum bara. En allt gengur vel enda með einsdæmum dugleg stelpa, líkist mömmu sinnni..
En jæja ætla að láta þetta gott heita í bili

» 2 hafa sagt sína skoðun

07.10.2008 10:04:10 / katlah

Jæja...

... maður velur alltaf besta tímann til að skrifa nokkur orð.. eða þannig. á að vera að læra undir sálfræðipróf en einbeitingin er algjörlega farin... það kemur ábyggilega niður á mér á eftir í prófinu!!!!!
Það var sprellmót á föstudaginn og var það snilldardagur frá upphafi til enda... vorum sveitadurgar heilbrigðisdeildin og vorum auddað langflottust! myndirnar segja allt sem segja þarf en....
Nenni ekki að setja myndirnar inn hér líka.. þær eru inná facebook og fólk getur bara litið þar við til að skoða8)
Síðan einkenndist bara helgin af lærdómi fyrir þetta blessaða próf sem er á eftir!!!!
Stóra stelpan mín búin að missa tönn.. en er svo komin með sýkingu í sárið þar sem tönnin var.. skil nú ekki hvernig það gat gerst og enduðum við uppá slysó í gær og fengum uppáskrifað pensilin til að drepa þessa sýkingu og erum við á leið til tannsa í dag eftir prófið hjá mér og skóla hjá henni...
jæja hef þetta ekki lengra að sinni hafði það sem allra best þangað til næst


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.09.2008 17:24:54 / katlah

Nýjar myndir.

Jæja skutlaði inn nokkrum myndum síðan í bústaðnum og síðan frá hittingi hér hjá mér fyrir Pallaballið... ekki margar en nokkrar;)
eru undir september albúmi.

p.s. gaman að sjá hvað þið eruð dugleg að kommenta!!! allveg til fyrirmyndar8)


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.09.2008 22:42:40 / katlah

Yndisleg helgi

Jæja þá er enn ein helgin liðin og var þessi helgi sérstaklega yndisleg.
Ég flaug suður á föstudagsmorguninn og Magga mín sótti mig á völlinn og fórum við heim til hennar og skoðaði ég húsið sem þau keyptu sér nýlega í borginni. Rosa flott og fín íbúð og verður sko ekkért smá glæsileg þegar framkvæmdirnar eru búnar.
Við fórum og versluðum síðan mat, nammi og áfengi, tökum okkur til og brunuðum á stað í bústað þegar Baddi var búinn í vinnunni.
Við fórum s.s vinkonurnar; ég, Sólveig, Magga, Sigga og Ásta ásamt mökum í bústað hjá Flúðum sem Atlanta á og vorum þar yfir helgina. Hugrún og Magnús gátu ekki leyft okkur að njóta nærveru sinnar því Hugrún er í verknámi og gat ekki fengið frí... ekkért smá leiðinlegt en svona er þetta bara!!!! þau verða með næst.
Þessi helgi var hreint út yndisleg, við borðuðum góðan mat, drukkum, spiluðum, kjöftuðum, hlógum og svömluðum í pottinum og held ég að sum okkar hafi verið laus frá beinunum eftir óeðlilega miklar og margar pottaferðir á einni helgi, minnti bara á krakkana í sumar þegar við fórum í bústað!!!
En já á föstudaginn þá sátum við og spiluðum langt framá nótt og svo vorum við farin áfætur um hádegi. sökum veðurs var ekki nein útivera þessa helgina, en við ætluðum á hestbak... en vorum ekki að nenna því í hagléli og roki!!!!
þannig að laugardagurinn fór í sjónvarpsgláp og nammiát og svo grill og pottur um kvöldið.
Sumir voru ansi þreyttir og sofnaðir um 10 og hroturnar heyrðust í nærliggjandi bústaði- það er til á upptöku til sönnunar!!! En við hin fórum í rúmið um 2 held ég. enda allir voða þreyttir eitthvað loksins þegar maður kemst í frí og er barnlaus og ætlar aldeilis að drekka og djúsa og hafa gaman.. þá verður maður bara uppgefinn og sefur!!!
Fórum svo í bæinn seinnipartinn og ég í flug um kvöldmat..
Svo hef ég bara setið hér og undirbúið morgundaginn fyrir skólann enda langur dagur á morgun.
En jæja ný skólavika að hefjast og litli sólargeislinn minn kemur heim á morgun, er farin að sakna hennar sárt.
Ég mun svo skutla nokkrum myndum frá bústaðnum hér inn fljótlega.. nenni ekki núna:$
þangað til næst hafið það sem allra best...

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.09.2008 23:23:59 / katlah

og helgin á enda!!!

já já sunnudagskvöld eina ferðina enn... sem er svosem ekki slæmt, mánudagar eru ágætir!!!
gat það verið að ég hafi kíkt á lífið í gær?? uuu já reyndar og var það hrikalega gaman bara, að vanda8)
Plönin breyttust eitthvað frameftir degi í gær og endaði það þannig að við hittumst hér nokkrar ungar og að sjálfsögðu gullfallegar yngismeyjar og fengum okkur bjór eða tvo og lá svo leiðin á Palla í sjallanum, en ekki hvað?
það var rosalega gaman, mikið stuð á palla en svo gafst ég upp á þessum þrenglsum þar og fór  á mitt annað heimili eða kaffi ak og þar fíla ég mig alltaf best.
Djammið stóð fram á morgun en ég held ég hafi skriðið heim um kl 6.
Ræs kl 11 í morgun, sótti skottið mitt og voru bara rólegheit í dag, fórum í sund og svona, enduðum svo í mat hjá mútter- sem klikkar auddað aldrei.. bestasti matur í heimi!!!
Svo hef ég verið að rembast bara við lærdóm í kvöld með smá viðkomu á facebook og msn.. bara þetta venjulega og svo tekur bara ný vika við og hlakka ég til.
Stelpunni gengur vel í skólanum og er bara að fíla þetta vel- þó hún segist stundum vilja skipta og vera bara á leikskóla ennþá, segir að Gunni kokkur þar eldi betri mat!! hehe
Bústaðarferðin fer allveg að bresta á.. flýg suður á föstudaginn og fer með Siggu og Jóa bara í bústaðinn.. nenni svo ekki að keyra enda 6 klst keyrsla og það er bara svipað dýrt að fljúga og keyra og ekki spurning um að velja flugið frekar!!!
Jæja ætla að undirbúa morgundaginn og fara að sofa.. hálf svefnlaus eitthvað, hhmm skrítið.
þangað til næst hafið það sem allra best og þætti mér vænt um smá kvitt.. því þeir sem þekkja mig vita að ég er sú forvitnasta og langar að sjá hverjir lesa þessa vitleysu mína ;)

» 4 hafa sagt sína skoðun

03.09.2008 22:00:26 / katlah

blablabla

Langaði að henda inn hér nokkrum línum... og já myndum í albúmið.. brúðkaupsmyndir;)
svosem ekki mikið að frétta en hér koma nokkrir punktar;
skólinn gengur vel- fer rólega af stað mundi ég segja en fyrsti "verklegi" líkamsmat tíminn á morgun- skoðum kvið og ég ætla nú ekki að bjóða bumbuna mína fram.. leyfi einhverjum öðrum að sýna sína8)
Sólinni minni gengur líka vel í skólanum, gaman að segja frá því-fyrsta barnið sem fékk með sér bók heim til að vinna í vegna áhugasemi í ungu dömunni.. hvaðan hefur hún það??
Lítur vel út með pilates námskeiðin mín og það verður sko nóg að gera í kennslu í vetur og reiknum við með fitness útliti um jólin bara8)
Allveg að fara til Reykjavíkur þar sem kortið verður óspart notað og jú aðeins tekið á því á kennaranámskeiði líka
Stittist einnig í bústaðarferð með mínum bestustu og kærustu og mökum þeirra:haha:
Læsingin á bílnum biluð og get því ekki notað fjarstýringuna til að læsa.. djös bömmer maður, þarf meira að segja að læsa hverri hurð fyrir sig.. haldið að þetta ekki hræðilegt ;)
Klipping og litun á morgun og ég get ekki beðið hef verið með ljótu dauðans undanfarið en vona að það breytist eftir hádegi á morgun;)
En annars ætla ég að láta þetta gott heita í bili, hafið það sem allra best og djammiðið varlega meðan ég er í burtu...

» 5 hafa sagt sína skoðun

28.08.2008 11:20:20 / katlah

Helgarfrí...

já já stutt skólavika þessa fyrstu viku. Byrjaði á mánudaginn og leggt þetta bara rosalega vel í mann að vera mættur aftur í fyrirlestra og hitta alla aftur.. bara eins og maður hafi skroppið í helgarfrí;)
Skottið byrjaði líka a í sínum skóla í gær og var stuttur dagur þá og svo smá lengist þetta núna og verður komið í fullan gang á mánudaginn með vistun og öllu tilheyrandi.. þannig að það eru spennandi hlutir í gangi og framundan hjá okkur mæðgum. Skottið lætur bara vel af skólanum en finnst frímó heldur stuttar, varla tími til að leika þá hringir bjallan og þá verður sko að hlaupa inn!!! æji hún var svo sæt í gær, komin í útifötin og með töskuna á bakið, fylgdi henni í skólann með tárin í augunum og stolltið leyndi sér ekki.. en ég er víst ekki sú eina í þessum sporum hehe
Var að skoða MBL og varð bara að skjóta stjörnuspánni minni fyrir daginn hér inn;
VOG: Falda hliðin á þér kemur út til að skemmta sér. Hvað kallarðu þessa stuðhlið persónueika þíns? Hafðu skoðanir á málunum og fáðu þér gælunafn.
Hmm gælunafn... hef aldrei pælt í því... veit ekki hvað það ætti að vera, einhverjar hugmyndir?
Annars er helgin óráðin. gæti verið á leið á lífið á laugardaginn, hún Lára mín átti afmæli í gær og heldur kanski teiti í tilefni þess og svo voru umræður í gangi í bekknum að hittast, en sýnist á öllu að undirtektir fyrir þvi eru ekki miklar.
Annars er aðalmarkmiðið að ná pestinni úr sér sem ég náði mér í, ásamt ansi mörgum heyrist allir vera eitthvað lasnir og kvefaðir..
Svo er það bara borgin næstu helgi, er á leið á kennaranámskeið- bæta við mig menntun á því sviði líka svo ég geti nú kennt fleiri og fjölbreyttara niðrí átaki, en nýtt námskeið hefst eftir helgina og er gaman að segja frá því að biðlisti myndaðist fyrir rúmri viku síðan, en við stefnum á fleiri námskeið eftir kennaranámskeiðið, bara gaman, meiri peningur og meiri hreyfing.. maður veðrur kanski bikinfær um jól8)
Jæja ætla að láta þetta gott heita hér í bili, bara láta vita af mér
þangað til næst, hafið það sem allra best

» 0 hafa sagt sína skoðun

24.08.2008 21:01:03 / katlah

myndir

jæja tókst að tæma myndavélina og skutlaði myndum inn á speisið www.myspace.com/katlahildar  tékk it át;)
Annars snilldarhelgi á enda og ekkért annað en gott um hana að segja.. nú er kæruleisið búið og sest ég á skólabekkinn aftur í fyrramálið kl 10 eftir allveg yndislegt sumar, það besta lengi... eða bara það besta frá upphafi og erum við þá að tala um ansk.. gott sumar.
Skrifa meira síðar þegar ég gef mér tíma til að líta upp úr skólabókunum:haha:

» 0 hafa sagt sína skoðun

23.08.2008 18:18:58 / katlah

Á diskóbar ég dansaði frá sirka 12 til 7..

já.. varð bara að halda áfram með textann hehe..
En förinni er einmitt heitið á tjúttið í kvöld, en ekki hvað??? hvað gera einhleypar stelpur annað um helgar (þegar þær eru barnlausar)? ég hef allavega ekki fundið neitt annað betra að gera á laugard.kvöldi.
Er að fara með Ástu minni og fleirum hressum stelpum á tjútt í kvöld og verður það mjög gaman.. ég bara veit það því þannig er það þegar við Ásta komum saman;)
Annars má segja það að sumafríiið sé búið.. skóli á mánudaginn.. allan daginn.. og ég hlakka orðið til að hitta bekkinn aftur og jú mig hlakkar líka til að byrja að læra, dreyfa huganum aðeins og fara að huxa um eitthvað annað:$ Svo byrjar skottið mitt í skólanum á miðvikudaginn þannig að nú fer allt að komast í rútinu.. sem er gott. Fimleikar, kennsla, skóli og heimalærdómur.. það verður nóg að gera hjá okkur mæðgum í vetur:d
Annars hefur lítið á daga mína drifið.. sumafrí.. dagarnir hafa einkennst af æfingum, pottaferðum, búðarrápi og peningaeyðslu...
Svo er það handboltinn í fyrramálið og held ég að planið sé einfaldlega þannig að koma seint heim af djamminu og horfa á leikinn og skríða svo upp í sæll og glaður eftir leikinn.. sem verður auðvitað okkur í hag;)
En jæja ætla að fá mér eitthvað í svanginn og fara að baða mig og gera mig sæta f. kvöldið.
p.s tölvugúruinn minn er ALDREI heima og því hef ég ekki komið neinum myndum frá mér lengi lengi.. en kemur einhverntímann

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.08.2008 22:56:44 / katlah

Og þegar þú komst inn í líf mitt ...

breyttist ég , þú komst , þú komst við hjartað í mér, ég þori að mæta hverju sem er, þú komst, þú komst við hjartað í mér.... sem betur fer..
Eigum við eitthvað að ræða það hvað ég er ástfangin af þessu lagi :lol:
Skellti því á mæspeisið, keypti pottþétt 47 meira að segja bara fyrir þetta lag... jább má segja að því sé nauðgað á þessu heimili.. ekki bara af mér heldur er skottið mitt með ipodin minn öllum stundum og syngur hástöfum með... efnileg söngkona þar á ferð.. annað en mamma hennar... hmm veit ekki hvaðan söngröddin kemur því ekki er pabbinn mjög söngfagur heldur8)
Annars er allt gott í fréttum héðan... Hætti í vinnunni á föstudaginn og erum við mæðgur því formlega í sumarfríi.. og erum svo að hafa það næs!!!!
Brúðkaupið hjá Möggu og Badda var á laugardaginn og var það æðislegt..en Katla felldi ekki eins mörg tár og í brúðkaupinu fyrr í sumar.. en gæsahúðin lét ekki á sér standa alla athöfnina. Titanic lagið hljómaði þegar brúðurin gekk inn gólfið en dóttirin var með smá uppistand, vildi ekki hleypa mömmu sinni inn gólfið, en mér fannst það bara sætt.
Veislan var haldin á efri hæðinni á Greifanum og var maturinn hrillilega góður og skemmtiatriðin auðvitað góð.. við stelpurnar fluttum ræðu... Eða við Sólveig töluðum fyrir hópinn enda málglaðar stúlkur þar á ferð og vorum svo með leik fyrir brúðhjónin..
Allir skemmtu sér vel og rann áfengið ljúflega niður... allavega hjá mér.. svo réðumst við á dansgólfið og hituðum upp fyrir kaffi ak og skelltum okkur svo þangað seinna um kvöldið, þar var mikið stuð og mikið dansað.
Sunnudagurinn fór svo í það að vorkenna sjálfum sér og var bara tekin dvd á þetta og keypt nammi og appelsín8) og er það það besta í þynnkunni.
Hef verið að reyna að koma myndum úr vélinni.. en það stendur eitthvað á sér... ég er náttlega ekki sú tæknivæddasta í bransanum... en myndirnar koma... einhverntímann.
Síðan hefur dagurinn í dag verið rólegur.. Skottið mitt hefur verið úti á lundarskóla og heima sit ég.. þvæ þvott, hangi í tölvunni og jú orkaði það að skúra hjá mér.. ætla að njóta næstu daga að gera ekki neitt.. mesta lagi að kaupa skóladót fyrir okkur mæðgur.
En jæja sit hér ein í rökkrinu og vafra um á netinu.. hef ekkért að gera.. nema bíða eftir helv.. þvottavélinni... og skrifa hér nokkrar línur um.... nákvæmlega ekki neitt...
En þangað til næst hafið það sem allra best:þ

» 1 hafa sagt sína skoðun

14.08.2008 18:16:26 / katlah

Ýmislegt reynt til þess að fá fullnægingu

Tekið af MBL... ég bara gat ekki staðist þetta.. er búin að liggja í kasti yfir þessari frétt.. aumingja maðurinn :haha: hefur ábyggilega verið erfitt að vera löggan sem kom á staðinn.. shit maður:lol:
Einmana karlmaður í Hong Kong varð að óska eftir aðstoð lögreglu eftir að hann festi kynfæri sín í gati á æfingabekk í almenningsgarði í skjóli nætur. Hafði maðurinn gert tilraun til þess að eiga kynmök við bekkinn. Greint er frá þessu í fjölmörgum kínverskum fjölmiðlum í dag.

Lögregla og sjúkraliðar reyndu í fjóra klukkutíma að losa kynfæri Le Xing úr gatinu og að lokum varð að flytja hann, ásamt bekknum, á sjúkrahús þar sem tókst að losa hann úr prísundinni. Telja læknar að það sé algjör heppni að kynfæri Le Xing hafi þolað átökin.


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.08.2008 23:40:49 / katlah

Líður að hausti..

ooo ég elska það þegar það er dimmt á kvöldin.. og það er sko orðið dimmt, love it:haha:
Annars er gott að frétta af okkur litlu fjölskyldunni. Síðustu dagar hafa bara einkennst að vinnu, æfingum- er loksins að komast í gírinn eftir vikufrí.. og erum við að tala um strengi og allan pakkann bara.
Dúllan mín er þessa vikuna á námskeiði á Hömrum og er að fíla sig í botn.. enda mikið nátturubarn þar á ferð. Hún kemur í vinnuna með mér á morgnanna og aðstoðar mömmu sína að klæða gamla fólkið, keyrir þau í hjólastól og hjálpar heilmikið til svo við tölum ekki um gleðina sem hún færir eldra fólkinu svona í morgunsárið, er nokkuð annað hægt þegar 6 ára ljóshærð sæt stelpa með fléttur er það fyrsta sem maður sér þegar maður opnar augun??? ég veit að ég get ekki annað en brosað:haha:
Í dag vorum við úti að labba og þá segir sú stutta hvað sér leiðist að hafa engann til að leika við (þá mínútuna) og segir "ooohh mamma ég óska þess svo að eignast systkini.... 4 ára bróður.... hhhmmm ég spurði hana hvernig ég ætti að fara að því að uppfylla þá ósk því ekki ætlaði ég að leggja í að fæða það barn.. þá huxaði sú stutta sig lengi um og segir svo... ja sko er ekki hægt að panta svoleiðis??? en fattaði um leið að dæmið gengi ekki allveg upp svo hún sagði að pínu lítill væri líka allveg nóg!!!!
Önnur saga af þessu yndi.. við vorum að keyra í dag og það kom flott lag í útvarpinu og ég var eitthvað að syngja með eins og ég geri oft þegar eitthvað flott lag er í útvarpinu... og þá heyrist í henni "mamma hefur verið í söngskóla?" og ég svara "nei hef aldrei prófað það" og hún segir þá þessi elska "þú ert með fallegustu rödd sem ég hef heyrt, hún hljómar svo vel og er svo tær og falleg" hehe verð því miður að viðurkenna að stelpan hefur ekki gott tóneyra fyrst henni finnst þetta því ég er sú falskasta í bransanum.. en hvað gera þau annað en bræða hjarta manns með svona hóli:haha:
Um síðustu helgi fórum við mæðgur saman til Dalvíkur á fiskidaginn og var það bara rosa gaman, ég hef aldrei áður farið.. hef yfirleitt verið að vinna þessa helgi. við vorum komnar til Dallas city um hádegi og fórum ekki heim fyrr en um 7. Enduðum í kaffi hjá eldri frænkum okkar sem búa saman á Dalvík og var það rosa gaman, þar var fullt af hressum ættingjum og jú auðvitað hlaðið borð af tertum... og ég neita því ekki að við brögðuðum allar sortir!!!!!
Svo fórum við á handverkssýninguna á sunnudaginn með mútter og Síslu og var það gaman, rosalega margt fallegt þar og hefði ég nú léttilega getað eytt öllum bókapeningunum mínum þar.. en ég lét skinsemina ráða(í þetta skiptið). Keypti aðeins eina húfu, hring eftir Andra Geir og keramik dót..
Það má því segja að við mæðgur höfum verið menningarlegar þessa helgina, svo er það bara brúðkaup hjá Möggu og Badda næstu helgi og hlakka ég rosa til.. alltaf gaman að fara í brúðkaup...elska brúkaup, reikna svo með því að tjútta á skemmtistöðum bæjarins frameftir nóttu, en ekki hvað???8)
Mín hefur einnig verið í því að versla eitt og annað... hmm verslaði mér eitt stykki fartölvu um daginn, rosa flotta acer tölvu, keypti mér einnig bókaskáp undir allt námsefnið og er strax búin að fylla hana og reikna því með að ég þurfi að fjárfesta í annari áður en langt um líður.
Allt orðið reddí fyrir skólann nema þá kanski blöð í prentarann.. búin að kaupa bækurnar meira að segja.. keypti þær af einni á 3. ári.. snilld spara mér einhvern pening þar;)
Hætti í vinnunni á föstudaginn og fæ því eina viku í sumarfrí.. og ég get ekki beðið.. þurfa ekki að vakna við vekjaraklukkuna 7 daga Í RÖÐ!!!! SNilldddddd
Ný tímatafla er að verða reddí í átaki og eru spennandi og skemmtilegir tímar framundan.. hlakka rosalega til vetrarins þar, ég mun því dvelja þar löngum stundum og kenna slatta þar á viku sem er bara flott, bæði fyrir útlitið og budduna;)
En jæja held það sé komin háttatími á mig bara.. þangað til næst hafið það sem allra best.

» 0 hafa sagt sína skoðun

04.08.2008 22:47:11 / katlah

Rosalegasta helgi ársins að baki

og vá hvað hún var skemmtileg... það var allveg rosalegt...
Byrjaði á föstudaginn.. var að vinna í toppmenn og sport til 6, heim í sturtu og svo á kynningu frá Adam og Evu og jú jú auðvitað var verslað... hvað annað8) svo lá leiðin í bæinn og skemmtistaðir bæjarins skoðaðir. Hitti fullt af skemmtilegu fólki og var allveg rosa gaman, mikið dansað og djammað og veðrið var náttlega allveg geggjað. Við vinkonurnar lögðumst í grasið á torginu og sötruðum bjór og kjöftuðum og svo var aftur rölt á skemmtistaðina og dansað af sér rassinn til lokunar. Kom heim seint og síðar meir og var því lítill svefn þá nótt því við tók vinna í toppmenn og sport til 6.
Síðan var það matur hjá mútter og við Sigga mín komum hingað heim og sötruðum og puntuðum. Fórum til Unnar og er gaman að segja frá því að hún býr í gömlu íbúðinni hennar ömmu minnar og var rosa gaman en skrítið að koma þangað aftur.. rifjuðust upp minningar síðan maður var þar í gamla daga, lék sér í fataherberginu og renndi sér á rassinum niður stigann.... Svo lá leiðin í sjallann.. og var alltof troðið þar og var ég ekki allveg að fíla það.. endaði nánast í fæting við eitthvað lið sem var eilíft að traðka á manni.. þoli ekki svoleiðis bögg, endaði því á kaffi ak eins og alltaf og var hörku stuð þar, passlega margir og fullt af skemmtilegu fólki og þar var sko dansað eins og enginn væri morgundagurinn.. mikið hrillilega var það gaman, síðan var það bæjarrölt og endaði svo í löggubíl sem keyrði mig örugga heim í bólið.
Vaknaði við símann kl 9 og var það prinsessan mín sem var að enda sumarfríið hjá pabba sínum í gær og vildi bara hringja í mig og segja mér hvað hún hefði fengið í afmælisgjöf.. því hún átti jú afmæli í gær, orðin 6 ára. Náði í hana um hádegi og dúlluðumst við frameftir degi saman. Gærkvöldið fór í kökubakstur og undirbúning fyrir afmæli sem haldið var í dag. Vann til hádegis í dag og svo brunuðum við hingað heim og lögðum lokahönd á undirbúninginn.. Aðeins 4 krakkar af 12 komust í afmælið, enda margir í ferðalagi á þessum tíma sumars en það var rosa gaman hjá þeim. Svo komu Mamma og c.o og Sigga með börnin seinnipartinn og var haldið áfram að raða í sig kræsingum.
En svo er hún sigga mín að flytja suður á morgun.. finnst svo stutt síðan hún sagði mér að það væru 4 mán. í þetta hjá þeim, ég fór áðan til hennar að knúsa þau og kveðja.. og er ég með stórann kökk í hálsinum.. ég á eftir að sakna hennar svo mikið, rosalega mikið... en held að við verðum nú duglegar að kjafta í símann þegar hún er búin að koma sér fyrir í borginni...
En jæja ætla að láta þetta gott heima.. þetta var helgin í smáatriðum, mikið drukkið, dansað og lítið sofið sem er nú í lagi, maður ræður vel við það.. enda svo ungur ennþá8)
Þangað til næst hafið það sem allra best love ya all

» 3 hafa sagt sína skoðun

31.07.2008 17:18:58 / katlah

Versló....

Já það hefur nú margt gerst um verslunnarmannahelgina í gegnum tíðina... var einmitt að rifja það upp hérna þar sem ég er að baka fyrir barnaafmæli sem haldið verður á mán.. og ætla ég aðeins að baka núna og skella í frystinn því ég mun ekki komast yfir það á sunnud. klára það þá
En já það sem gerst hefur um verslunnarmannahelgar...ég var t.d gangsett á þessum degi f 6 árum síðan og á laugard. um versló eða 3. ágúst fæddist stór og stæðileg prinsessa sem er það dýrmætasta sem ég á. En já s.s barnið litla er að verða 6 ára um helgina og sama dag kemur hún heim úr sumarfríi frá pabba sínum. Hún hefur gert margt á þeim tíma, farið í ferðalag, farið í sund, íþróttaskólann, lært að hjóla með 2 dekk og margt fleira sem ég mun heyra nánar um síðar.
en já svo hefur maður nú verið duglegur á djamminu um verslunnarmannahelgarnar í gegnum tíðina.. og yðjulega unnið eins og skepna með, verið hýfaður í vinnunni og svona skemmtilegt... og já margt fleira sem ekki er gáfulegt að setja á vefinn...8)
En já síðasta helgi einkenndist af rólegheitum svona framanaf og svo djammi á laugard. en halda átti hjúkkupartý og var mætingin allveg svona líka.. 4 mættu en við erum sammála að það var fámennt er GÓÐMENNT.. enda skemmtum við okkur allveg hrillilega vel og tjúttað var frameftir morgni.. já já held ég hafi skriðið heim að nálgast 8.
svo er skvísan bara komin í helgarfrí og finnst það ekki slæmt, að vísu er ég að vinna í toppmenn á laugard. en það verður bara gaman að vera í miðbænum og fylgjast með lífinu þar..
Jæja ætla að þrífa hérna hjá mér og klára að baka..
Farið varlega um helgina.. og ekki gera neitt sem ég mundi ekki gera.
Góða helgi

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.07.2008 19:27:21 / katlah

tími á nýja færslu já??

jú ju ætli það ekki.
Síðustu dagar hafa einkennst af vinnu og æfingum. Ég hef mætt í ræktina kl 6, upp á hlíð kl 8 til 13 og svo í toppmenn og sport til 18. kennt kl 19 og já.. þá er yfirleitt búið á mér bara. En ég er komin í helgarfrí og verður það magnað. Æfing í fyrramálið og svo búðarráp og laga til í kotinu og svo er djamm annað kvöld, en ekki hvað??
Við ákv að hafa hitting hjá hjúkkum og iðjum og má segja að mætingin verði léleg, en það verður fámennt og góðmennt og hlakka ég rosa til. 
Sigga og Jói giftu sig síðustu helgi og var brúðkaupið æði.. nú er ég farin að hallast meira að því að mig langi til að gifta mig!!!!! þetta var svo fallegt, ég var með gæsahúð alla athöfnina og eins og ég sagði við föður brúðarinnar "ég var með tárin full af augum alla athöfnina" ef þið viljið sjá myndir þá eru þær á www.myspace.com/katlahildar, algjör óþarfi að hafa þær á tveim stöðum.
Við Sigga fórum í bíó á mamma mía á miðvikud. kvöldið og mér finnst myndin algjört æði, held að allir bíógestirnir hafi gengið út af myndinni með bros á vör enda hressandi og skemmtileg mynd á fer. Maður átti það til að dilla sér í sætinu og raula með.. þessa mynd væri gaman að eiga á DVD og horfa á til að koma sér í gott skap.
svo eru Heiðdís og Viðar að fara að skíra á sunnudaginn og hlakka ég rosa til að vita hvað prinsessan á að heita.. búin að kaupa flotta gjöf.. en ætla mer ekki að setja það á vefinn.. hún gæti lesið færsluna f. sunnudaginn.
En jæja þetta er svona það helsta sem á daga mína hefur drifið en í kvöld er það ljós með henni Thelmu minni.. langt síðan við höfum á date og kjaftað...
En þangað til næst hafið það sem allra best og sjáumst hress á tjúttinu um helgina.. ef ekki núna þá um versló...
love all Katla djammdrottning8)

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6